1928
Sjúkraskýli héraðslæknisins í Stykkishólmi
“Um 1920 var stofnað í Stykkishólmi sjúkrahúsfélag, er tók sér það fyrir hendur að safna fé til sjúkrahúsbyggingar þar í þorpinu. Í byrjun árs 1928 hafði verið önglað saman með ýmsu móti 12 ½ þús. kr., auk þess sem sem fengið hafði verið loforð Snæfellsness -og Hnappadalssýslu fyrir 6 þús.kr framlagi “Í eitt skipti fyrir öll”. Var nú hugsað til framkvæmda og í því skyni leitað eftir styrk úr ríkissjóði. Það hafði þá ekki framgang vegna þess, að hlutaðeigendur töldu sig ekki hafa bolmagn til að rísa undir stærri byggingu en nægði 8 sjúklingum, enda mátu við hæfi byggðarlagsins, en landlæknir taldi jafnlítið sjúkrahús ekki mundu rísa undir sjálfu sér sem sérstök stofnun og treystist ekki til að mæla með styrkveitingunni; áður höfðu hlutaðeigendur guggnað á að reisa læknisbússtað ásamt sjúkraskýli, eins og upphaflega hafði verið á döfinni………” (1)
Framan af snérist starfsemi félagsins nær eingöngu um fjáraflanir sem oft voru í formi leikrita eða skemmtana sem haldnar voru á tyllidögum. Þann 26 september 1927 heldur stjórn sjúkrahúsfélagsins fund og ritar þar bréf til nokkurra manna bæði í Stykkishólmi og í nærliggjandi sveitum. Þar er farið yfir stöðu fjármála félagsins og segir meðal annars.
“Eins og þér jáið af þessu er málið nú svo vel á veg komið að eigi ætti ókleift að henda því í framkvæmd nú á næstunni og er margt sem stuðlar að því”. (2)
Ekki varð þó af framkvæmdum í þetta skiptið en nokkuð ljóst að þessi fyrirhugaða framkvæmd snérist um að reisa byggingu samkvæmt teikningu frá húsameistarar ríkisins sem undirritur er af Guðjóni Samúelssyni 1926.
Mynd 1. 8 rúma Sjúkraskýli með læknisbústað. Húsameistari ríkisins (3)
Haldið var áfram með fjáraflanir og áherslan nú meiri á hlutaveltur og happdrætti heldur en skemmtanahald. Í Nóvember 1928 færði Sjúkrahúsfélagið út kvíarnar og stofnaði til nefndar sem í voru fulltrúar allra hreppa læknishéraðssins til þess að styðja en betur við byggingu sjúkraskýlis og rekstur þess. Nefnd þessi fundaði í desember 1928 og á sama tíma kom frá húsameistara ný teikning af 8 rúma sjúkrahúsi, án læknisbústaðar (eins og greinir hér að ofan).
Mynd 2 8 Rúma sjúkraskýli án læknisbússtaðar. Húsameistari ríkisins (3)
Haustið 1929 er formanni sjúkrahúsfélagsins síðan falið “að útvega nýja teikningu af 8 manna sjúkraskýli, er hæfi betur hjer en teikningar þær, er fjelagið hefir fengið áður.” (2)
Í framhaldinu leitaði nefndin er skipuð var hreppafulltrúunum til Emils Jónsonar verkfræðings í Hafnarfirði og gerði hann hinn þriðja uppdrátt af en minna 8 rúma húsi.
Mynd 3. Spítalateikning Emils Jónssonar. 1929 (3)
Í bréfi frá Landlækni, dagsettu 19.júlí 1930. Hvetur hann til þess að uppdráttur húsameistara verði notaður og að hinn minni “sé neyðarúrræði”.(2)
Einnig bendir hann á að lóð sú er skipulagsnefnd hafi lagt til (uppi á Steinólfshól hjá læknishúsinu) sé of lítil og óhentug í alla staði. Hann bendir á staðsetningu við Maðkavík á mótum Austurgötu og Skúlagötu sem nothæfa spítalalóð en besti staðurinn sé út í Nesi. (4)
Á þessum stað virðist máli hafa verið þegar Kaþólska kirkjan og St. Franciskussystur koma inn í myndina of reisa sitt 40 rúma sjúkrahús eftir teikningu Sigurðar Guðmundssonar arkitekts. Það er athygli vert að þess verður hvergi vart í fundagerðum Spítalafélagsins að félagið hafi leitað eftir því að fá kaþólska systrareglu til liðs við sig. Það virðist hafa verið einkaframtak Ólafs Ólafssonar læknis sem ýtti því máli úr vör. (5)
Teikning Sigurðar Guðmundssonar af St.Franciskusspítala 1932. (6)
Eftirtektarvert er að á þessari teikningu er allur spítalinn með flötu þaki, en Sigurður var að hverfa frá þeim stíl á þessum tíma. Endanlega urðu þökin því blanda af valma og flötuþaki.
Heimildir
(1). Vilmundur Jónsson Sjúkrahús og sjúkraskýli á Íslandi í hundrað ár : skráð í tímaröð. Reykjavík 1970.
(2) (Abs) 9-7-1919-1939-Fundabók Sjúkrahúsfélags Sth.- 9GCFHI+6WZ (nr.18)
(3) (Abs) 16-2-1926-1929-Teikningar og bréf varðandi sjúkraskýlið í Sth.-16B+C+D+G+J+L
(4) Sama Fylgiskjal III Bréf frá Guðmundi Björnssyni landlækni til ótilgreinds viðtakanada.
(5) Ólafur Ólafsson læknir til M.Meulenberg biskups 23. júlí 1931
(6) Teikningasafn st.Franciskusspítala.




